Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í gær um óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands, með stöðugum horfum. Há landsframleiðsla og góð staða ríkisfjármála eru talin honum til tekna, en smæð hagkerfisins og einsleitni útflutnings vegi á móti. Frá þessu er sagt á vef stjórnarráðsins .

Langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt standa í A og skammtímaeinkunnir eru óbreyttar í F1+.

Verulegur bati á efnahagsreikningi hins opinbera, studdur varfærinni stefnu í opinberum fjármálum, ásamt frekari bata í ytri stöðu og viðnámsþrótti hagkerfisins til að bregðast við ytri áföllum, eru sögð geta leitt til hærri lánshæfiseinkunnar.

Viðvarandi og skarpari niðursveifla en gert er ráð fyrir með tilheyrandi áhrifum á bankakerfið, ásamt verulegu fjármagnsútflæði sem ógnað gæti fjármálastöðugleika, er á móti sagt geta leitt til lægri einkunnar.