Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,02% í dag og endaði í 1909,79 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,56% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eikar, eða um 0,64% í viðskiptum sem hljóða upp á 181 milljón króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 8,64 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,52% í 94 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 er þá 67,10 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,52% í 237 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er 38,20 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Haga um 0,20% í viðskiptum upp á 112 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 49 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 941 milljón króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,3 milljarðar króna.