Lækkun olíuverðs olli lækkun bréfa orkufyrirtækja, sem hafa ekki staðið lægra í hálft ár, á Bandaríkjamarkaði í dag.

Bréf Exxon olíufyrirtækisins lækkuðu um 2,8 dali og fóru þar með niður í 77,5 dali á hlut.

Nadaq vísitalan lækkaði um 1,1% í dag. Dow Jones lækkaði um 0,4% og Standard & Poor´s lækkaði um 0,9%.

Olíuverð lækkaði eins og fyrr sagði, um 3,3%, og kostar tunnan nú 120,9 Bandaríkjadali.