Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Icelandic Group. Jóhann var áður forstöðumaður hagdeildar félagsins.

Á árunum 2004-2008 var Jóhann forstöðumaður á fjármálasviði hjá Bakkavör Group og bar m.a. ábyrgð á uppgjöri samstæðunnar. Þar áður vann hann hjá Íslenskri erfðagreiningu og KPMG endurskoðun.

Jóhann er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.