Haft er eftir Benedikt Jóhannessyni, formanni Viðreisnar, í Fréttablaðinu í dag að: „þetta mjakast hægt áfram,“ aðspurður um gang stjórnarmyndunarviðræðna Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Hann sagði jafnframt að það yrði unnið langt fram á nótt. Benedikt sagði hóflega bjartsýnn á það að niðurstaða næðist. Einnig er tekið fram í grein Fréttablaðsins að ef niðurstaða fæst ekki fyrripartinn í dag er talið líklegt að viðræðurnar hafa strandað.