Eins og áður hefur komið fram fer úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum fram annað kvöld. Þar keppa New York Giants á móti New England Patriots.

Alltaf er mikil eftirvænting eftir úrslitaleiknum, eða Super Bowl eins hann er kallaður vestanhafs. Eftirvæntingin er þó ekki bara á meðal áhorfenda og stuðningsmanna liðanna því sú sjónvarpsstöð sem sýnir leikinn aflar iðurlega gífurlegs fjármagns vegna auglýsingatekna. Auglýsingarnar sem sýndar eru í leikhléum og í hálfleik eru meðal þeirra allra dýrustu í sjónvarpi í Bandaríkjunum.

Tímaritið Forbes hefur tekið saman 10 verðmætustu Suber Bowl keppnirnar með tilliti til auglýsingatekna. Athygli vekur að allir Suber Bowl leikir síðustu 10 ára eru á listanum. Efst á listanum er þó leikurinn á morgun, en áætlaðar auglýsingatekjur NBC sjónvarpsstöðvarinnar eru um 245 milljónir dala.

Listinn er sem hér segir:

1. Super Bowl XLVI (2012)
New England Patriots gegn New York Giants.
Auglýsingatekjur: 245 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: NBC
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 3.5 milljónir dala

2. Super Bowl XLIII (2009)
Pittsburgh Steelers sigruðu Arizona Cardinals, 27-23
Auglýsingatekjur: 204 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: NBC
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 3.1 milljónir dala

3. Super Bowl XLV (2011)
Green Bay Packers sigruðu Pittsburgh Steelers, 31-25
Auglýsingatekjur: 195 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: FOX
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 3 milljónir dala

4. Super Bowl XLII (2008)
New York Giants sigruðu New England Patriots, 17-14
Auglýsingatekjur: 186 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: FOX
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.7 milljónir dala

5. Super Bowl XL (2006)
Pittsburgh Steelers sigruðu Seattle Seahawks, 21-10
Auglýsingatekjur: 163 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: ABC
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.7 milljónir dala

6. Super Bowl XXXIX (2005)
New England Patriots sigruðu Philadelphia Eagles, 24-21
Auglýsingatekjur: 158 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: FOX
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.7 milljónir dala

7. Super Bowl XLI (2007)
Indianapolis Colts sigruðu Chicago Bears, 29-17
Auglýsingatekjur: 152 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: CBS
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.7 milljónir dala

8. Super Bowl XLIV (2010)
New Orleans Saints sigruðu Indianapolis Colts, 31-17
Auglýsingatekjur: 151 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: CBS
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.7 milljónir dala

9. Super Bowl XXXVIII (2004)
New England Patriots sigruðu Carolina Panthers, 32-29
Auglýsingatekjur: 150 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: CBS
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.6 milljónir dala

10. Super Bowl XXXVI (2002)
New England Patriots sigruðu St. Louis Rams, 20-17
Auglýsingatekjur: 134 milljónir dala
Sjónvarpsstöð: FOX
Meðaltekjur af hverri auglýsingu: 2.3 milljónir dala