Icelandair kynnti í morgun vetraráætlun fyrir veturinn 2023-2024 og þá umfangsmestu í sögu félagsins, að því er segir í fréttatilkynningu‏.

Áfangastaðir verða 36 talsins og nemur aukning á áætluðu sætaframboði á tímabilinu nóvember til febrúar 20-25% í samanburði við vetraráætlun 2022-2023. Tíðni til fjölda áfangastaða hefur verið aukin og fimm áfangastaðir sem flogið hefur verið til hluta úr ári verða nú heilsársáfangastaðir.

Að auki verður nú í fyrsta sinn boðið upp á dagflug til New York og Boston yfir vetrartímann og verður því flogið allt að 11 sinnum í viku til Boston og 21 sinni í viku til New York í vetur.

Áfangastaðir sem verða heilsársáfangastaðir:

Áfangastaður Vetrartíðni
Róm Þrjú flug í viku
Barcelona Þrjú flug í viku
Raleigh Durham Fjögur flug í viku
Vancouver Fjögur flug í viku
Baltimore Daglegt flug

Auk ofantalinna breytingar var tíðni aukin á eftirfarandi áfangastaði:

Áfangastaður Tíðni eftir breytingar
Munchen Daglegt flug í allan vetur
Tenerife 4-6 flug í viku
Minneapolis 4-7 flug í viku fram til 7. janúar 2024
Chicago 5-7 flug í viku
Prag Tímabil lengt til 5. janúar 2024, 2 flug í viku
Boston 7-11 flug í viku
New York 17-21 flug í viku

„Vetraráætlun okkar hefur aldrei verið umfangsmeiri og það er mjög gleðilegt og til marks um sterka eftirspurn og metnaðarfulla þróun á leiðakerfi félagsins. Icelandair hefur um árabil lagt áherslu á að efla tengingar við Ísland yfir vetrartímann enda er það mikið hagsmunamál fyrir íslenska ferðaþjónustu og atvinnulíf, auk þess sem það gerir okkur kleift að nýta okkar innviði og flugflota betur,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu Icelandair.

„Við erum þess fullviss að farþegar okkar munu taka nýjungum eins og dagflugi til Bandaríkjanna allt árið fagnandi enda gefa þau kost á þægilegum ferðatíma og ótal tengingum út um öll Bandaríkin með samstarfsaðila okkar, JetBlue. Að sama skapi gerum við ráð fyrir að flug til Rómar og Barcelona verði sérstaklega vinsæl í haust og vetur hjá farþegum til og frá Íslandi sem og tengifarþegum yfir hafið.“

Tómas Ingason, framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu Icelandair.