Nú þegar innan við klukkustund er í að lokað verði fyrir viðskipti Í Kauphöll Íslands hefur Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] lækkað um 4,06%.

Þá hefur gengi bréfa í FL Group [ FL ] lækkað um 13,3%, í Exista [ EXISTA ] um 10,3% og 365 um tæp 8%.

Þá hefur velta með bréf í Kaupþing [ KAUP ] verið um 1,2 milljarðar en velta með bréf í Glitni [ GLB ] er tæplega milljarður. Velta með bréf í FL Group er um 200 milljónir það sem af er degi.

Aðeins eitt fyrirtæki hefur hækkað í dag en Century Aluminum [ CENX ] hefur hækkað um 0,7%.