Hrafnarnir sjá að Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR ætlar að reyna við nýtt Íslandsmet í lýðskrumi næstkomandi laugardag. Þá hefur hann boðað alla þá sem hafa „fengið nóg af einhverju“ eins og hann orðar það í herkalli sínu á samfélagsmiðlum á mótmæli við Austurvöll. Hrafnarnir telja að þetta hljóti verða fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar enda vandfundinn sá Íslendingur sem ekki er búinn að fá sig fullsaddan af einhverju.

Hrafnarnir gera þannig ráð fyrir að KR-ingar sem eru búnir að fá nóg af Rúnari Kristinssyni fjölmenni á Austurvöll og þá má gera ráð fyrir að ríkisbubbarnir sem búa við Kolagötu og eru búnir að fá upp í kok af hávaðanum af pílustaðnum Skor láti sig ekki vanta. Að sjálfsögðu ætla hrafnarnir að mæta enda fyrir lifandi löngu búnir að fá nóg af innantómu orðagjálfrinu í Ragnari Þór.

Huginn og Muninn er einn af skoðanadálkum Viðskiptablaðsins.