Eva Harðardóttir var kosin nýr stjórnarformaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (United Nations Association of Iceland) á aðal­fundi sem haldinn var í gær. Kosið er til stjórnar á tveggja ára fresti en Eva tekur við af Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.

Auk Evu skipa nýja stjórn Félagsins þau Þórður Kristinsson sem gegnir stöðu varaformanns, Páll Ásgeir Davíðsson, Susan Christianen, Védís Sigrúnar Ólafsdóttir, Viktoría Valdimarsdóttir, Þorvarður Atli Þórsson og Unnur Lárusdóttir.

Eva starfar sem aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og lýkur doktorsnámi þaðan í haust með áherslu á hnattræna borgaravitund. Eva hefur einnig starfað fyrir UNICEF í Malaví við stefnumótun og innleiðingu verkefna á sviði félags-, mannréttinda og menntamála og hefur víðtæka þekkingu og reynslu af því að vinna með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

“Það er mikill heiður og ábyrgð fólgin í því að taka við sem formaður félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi á 75 ára afmælisári félagsins. Ekki bara vegna þess að félagið á sér langa og merkilega sögu heldur einnig vegna þess að þau markmið sem sett voru við stofnun félagsins, árið 1948, eiga fullt erindi við okkur í dag: Að stuðla að alþjóðafriði, öryggi, samvinnu og samstarfi í anda hugsjóna Sameinuðu þjóðanna” segir Eva.