Bónusverslun verður opnuð í Hólagarði við Lóuhóla í Reykjavík um miðjan september nk. Verslunarstjóri verður Ólafur Ingi Gunnarsson en hann hefur liðin fjögur ár verið verslunarstjóri Bónus í Kringlunni. Verslunin í Hólagarði verður 23. verslun Bónus á landinu.

Þegar er byrjað að ráða fólk til starfa í verslunina.