Sala áfengis í maí jókst um 3,6% miðað við sama mánuð í fyrra en í kjölfar samþykktar Alþingis 28. maí um hækkun á áfengisgjaldi var mikil sala í Vínbúðunum 29.  og 30. maí  en hækkunin tók ekki gildi fyrr en 1. júní.

Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar en þessa tvo daga seldust 403 þúsund lítrar af áfengi eða sem nemur 21% af sölu mánaðarins.  Mest jókst salan á hvítvíni um 20,8% en næst kom rauðvín með 11,9% aukningu miðað við maí 2008.

Sala áfengis fyrstu fimm mánuði ársins jókst um 1,7% miðað við sama tímabil í fyrra.  Sala hvítvíns jókst um 9,2%, rauðvíns um 1,1% og lagerbjórs um 2,9%.