Alvotech hefur samið við alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma um markaðssetningu AVT23, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Xolair (omalizumab). Samningurinn nær til Evrópska efnahagssvæðisins, Bretlands, Sviss, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálands. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Við hlökkum til að vinna með Advanz Pharma að markaðssetningu á þessu mikilvæga meðferðarúrræði við sjúkdómum í öndunarvegi. Þessi samningur er til marks um þá áherslu sem bæði fyrirtækin leggja á að bæta aðgengi sjúklinga að hagkvæmari líftæknilyfjum um allan heim,“ er haft eftir Anil Okay, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Alvotech.

Í tilkynningu kemur fram að samkvæmt samningnum muni Alvotech sjá um þróun og framleiðslu en Advanz Pharma sjái um skráningu og markaðssetningu lyfjanna. Heildarsala á frumlyfinu á þeim markaðssvæðum sem samningurinn nái til sé um 140 milljarðar íslenskra króna á ári (1 milljarður Bandaríkjadala) samkvæmt upplýsingum frá IQVIA.

Um AVT23

Í febrúar 2022 tilkynnti Alvotech um samning við BiosanaPharma um sameiginlega þróun AVT23 (omalizumab). Omalizumab er einstofna mótefni sem binst við IgE og er notað til meðferðar við ofnæmisastma og langvinnri nef- og skútabólgu með sepageri í nefi. AVT23 er lyf í þróun og hefur ekki hlotið markaðsleyfi.