Samið hefur við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S um hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju sem mun leysa Herjólf af hólmi. Stefnt er að því að hönnun ljúki í febrúarlok á næsta ári og að smíði ferjunnar ljúki síðla árs 2016. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar .

Vegamálastjóri Hreinn Haraldsson skrifaði undir samninginn 28. júlí síðastliðinn og er samningsupphæðin rúmlega 800 þúsund evrur eða um 124 milljónir króna. Hanna Birna Kristjánsdóttir, Innanríkisráðherra, heimilaði í febrúar fyrr á þessu ári að auglýsa útboð um hönnun ferjunnar. Um það sá starfshópur um hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju.

Að tillögu ráðgjafa starfshópsins, Jóhannesar Jóhannessonar skipaverkfræðings, voru teknar upp samningaviðræður við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S sem áttu eina gilda tilboðið í hönnun ferjunnar. Samningurinn sem var undirritaður byggir á endurnýjuðu tilboði Polarkonsult og er samningsupphæðin svipuð og upphafleg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Undirverktaki er Force Technology A/S.

Sérstæða verksins er nokkur á alþjóða vísu þar sem veðuraðstæður utan við Landeyjahöfn eru erfiðar vegna mikillar öldu af hafi og smærri öldu af ströndinni auk sterks straums við mynni hafnarinnar. Dýpi er lítið, getur verið um 4,5 m, og því þörf á grunnristri ferju sem þarf þess utan að geta athafnað sig í 3,5 m hárri öldu.