Árni Páll Árnason, nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar, hefur tekið ákvörðun um að gera ekki tillögu um breytingu á ríkisstjórn. Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem hann birti á vef Samfylkingarinnar í þessu.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Í kjölfar formannsskipta í Samfylkingunni um síðustu helgi hef ég metið með hvaða hætti er best að haga liðsskipan Samfylkingarinnar í ríkisstjórn næstu vikur. Við það mat hef ég haft að leiðarljósi tvennt: Hagsmuni þjóðarinnar af stjórnfestu og þá nauðsyn að finna fyrirheitinu um ný vinnubrögð og hreinskiptin stjórnmál farveg í verkum Samfylkingarinnar við landsstjórnina.

Niðurstaða mín er sú að gera ekki við þessar aðstæður tillögu um breytingu á ríkisstjórn. Fáar vikur eru eftir til kosninga og flest öll lykilmál eru þegar komin til meðferðar á Alþingi. Ekki er því ástæða til breytinga á ríkisstjórn við þessar aðstæður.

Formaður Samfylkingarinnar er pólitískur talsmaður flokksins og ber ábyrgð á starfi flokksins í ríkisstjórn og mun samkvæmt því umboði leiða stefnumörkun og starf Samfylkingarinnar innan flokks og utan, í samræmi við venju og hefðir þar um.“