Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 15% milli áranna 2014 og 2015 og nam það rúmum 151 milljarði króna á síðasta ári. Var afli íslenskra skipa rúm 1.319 þúsund tonn á árinu 2015 sem er 243 þúsund tonnum meira en árið 2014.

Stærsti hluti aflans var landað á Austurlandi, að mestu uppsjávarafli. Norðurland eystra og Suðurnes tóku við stærsta hluta botnfiskaflans, eða 35%. Fór mest af þorskaflanum í landfrystingu en kolmunni og loðna fóru að stærstum hluta í bræðslu.

Aukaafurðir sem féllu til við vinnslu fiskaflans gáfu verðmæti sem námu 5,6 milljörðum króna sem er aukning um 11,3% frá árinu áður.