Úrskurðarnefnd um upplýsingamál (ÚNU) hefur fellt úr gildi afgreiðslu Reykjavíkurborgar um afhendingu á upplýsingum til Samtaka iðnaðarins (SI) sem varða viðhald, endurnýjun og LED-væðingu götulýsingar í borginni.

Á næstu árum er fyrirhugað að skipta yfir í LED-lýsingu í borginni og er áætlað að það muni koma til með að kosta um sjö til tíu milljarða króna. Hingað til hefur Orku náttúrunnar (ON) verið falið að hafa umsjón með og bera ábyrgð á verkinu án útboðs. SI fengu þjónustusamning vegna verksins afhentan en fylgiskjöl fengust ekki afhent þar sem borgin taldi þær upplýsingar vera samkeppnisupplýsingar ON sem leynt mættu fara.

Í úrskurði ÚNU kom fram að eitt af markmiðum upplýsingalaganna væri að gefa almenningi tækifæri á að fá vitneskju um það hvernig opinberum fjármunum sé varið. Hagsmunir einstakra lögaðila á samkeppnismarkaði af því að samkeppnisaðilar þeirra geti boðið opinberum aðilum lægri verð fyrir veitta þjónustu verði því almennt að víkja fyrir þeim hagsmunum almennings að geta kynnt sér slíkar upplýsingar. Þá var þess einnig getið að þótt upplýsingar hefðu verið afmáðar á einum stað í skjalinu þá hefði það láðst á öðrum stað. Var því borginni talið skylt að afhenda SI umræddar upplýsingar að fullu.