Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.126,5 milljörðum króna í lok september og lækkuðu um 1,4 milljarð í mánuðinum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans en sjóður hækkaði um 7,6 milljarða, innstæður í Seðlabankanum lækkuðu um 6 milljarða og kröfur á lánastofnanir lækkuðu um 2,3 milljarða króna.

Útlán og eignaleigusamningar námu 964,5 milljörðum króna í lok mánaðarins og hækkuðu um 1,5 milljarð króna frá fyrra mánuði.

Skuldir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.096,3 milljörðum króna í lok september og lækkuðu um 1,2 milljarða frá fyrra mánuði. Aðrar skuldir hækkuðu um 13,4 milljarða króna og eigið fé lækkaði um 996 milljónir króna í mánuðinum.

Þó kemur fram að nýjustu gögn eru bráðabirgðagögn sem kunna að verða uppfærð eftir því sem nákvæmara uppgjör liggur fyrir. Virði útlána og eignaleigusamninga er óljóst í kjölfar dóms Hæstaréttar. Hagtölur ýmissa lánafyrirtækja endurspegla einungis starfandi lánafyrirtæki.