EFTA kallar eftir því að Ísland fylgi EES-reglum sem kveða á um kröfur til hráefnis sem notað eru við framleiðslu fiskilýsis og þannig gerð krafa að Ísland bæti opinbert eftirlit með framleiðslu á fiskilýsi eða fiskimjöli.

Samkvæmt EES-reglum ber Íslandi að tryggja að hráefni og framleiðsluferlar á starfsstöðvum sem framleiða fisklýsi og fiskimjöl til manneldis og ekki til manneldis, uppfylli strangar kröfur um hollustuhætti matvæla, til þess að forðast krossmengun og tengda áhættu gagnvart almannaheilbrigði.

ESA gerði úttekt á Íslandi í maí 2017 til að meta opinbert eftirlit samkvæmt kröfum um fóðuröryggi. Þar kom í ljós að opinbert eftirlit með framleiðslu á fiskilýsi væri ófullnægjandi. Í kjölfar úttektarinnar sendi ESA fjölmörg bréf sem ekki fengust fullnægjandi svör við. Því sendi ESA formlega áminningarbréf til Íslands í dag.

ESA hefur því komist að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi ekki með fullnægjandi hætti tryggt með opinberu eftirliti að framleiðsla í starfsstöðvum sem framleiða bæði fiskilýsi til manneldis og fiskimjöl- og lýsi sem ekki er ætlað til manneldis, uppfylli kröfur um hollustuhætti matvæla. Að auki samþykkti Ísland löggjöf árið 2017 sem stangast á við reglur EES um hráefni sem notuð eru við framleiðslu á fisklýsi.

Ísland hefur nú tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli lengra með málið.

Formlega áminningarbréfið má nálgast hér.