Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð í vikunni og nam 1,08 milljörðum króna.Veltan jókst því um 39% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins (áður Fasteignamat ríkisins) en rétt er að taka fram að veltan hefur ekki farið yfir milljarð króna frá því í byrjun desember.

Meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þó er meðalvelta síðustu fjórar vikur um 835 milljónir en lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í desember og fyrstu vikur þessa árs.

Til merkis um það er meðalvelta síðustu 12 vikna um 920 milljónir en í síðustu viku fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug.

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 67% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 39 í vikunni sem leið en 25 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en síðustu fjórar vikur hefur 28 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 37,3 milljónir króna og hækkar um rúmar sex milljónir milli vikna. Þetta er einnig nokkuð yfir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning frá síðustu áramótum eru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið um 30 milljónir síðustu fjórar vikur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 49% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.