Rick Dillon, fjármálastjóri Century Aluminum sem er móðurfélag Norðuráls, mun taka tímabundið veikindaleyfi frá störfum sínum fyrir félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu til Kauphallarinnar.

Búist er við því að Rick snúi aftur til starfa við lok fyrsta ársfjórðungs, en í millitíðinni mun Michael Bless, forstjóri fyrirtækisins, taka við starfsskyldum hans.

Century Aluminum hefur frestað birtingu uppgjörs fyrir fjórða ársfjórðung 2014 og mun það nú verða birt þann 24. febrúar næstkomandi.