Hlutur kvenna fer vaxandi í ýmsum áhrifastöðum en stendur í stað eða minnkar í öðrum.

Konur eru um þriðjungur (32–37%) þingmanna, ráðherra, sveitarstjórnarmanna, ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra ráðuneyta, héraðsdómara og nefndarmanna í opinberum nefndum.

Þær eru um fjórðungur (24–29%) forstöðumanna ríkisstofnana, framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnarmanna stærstu lífeyrissjóðanna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en gefin hafa verið út Hagtíðindi, Konur og karlar í áhrifastöðum 2008, í efnisflokknum heilbrigðis-, félags- og dómsmál.

Þá eru konur meirihluti stjórnenda á leikskóla- og grunnskólastigi en karlar meirihluti stjórnenda á framhaldsskóla- og háskólastigi.

Kynjaskipting meðal stjórnarformanna og stjórnarmanna fyrirtækja var óbreytt árin 1999–2007, en konur voru þar rúmur fimmtungur. Hlutfall kvenna af framkvæmdastjórum hækkaði úr 15% í 19% á sama tíma.

Að lokum kemur fram að dagblöðum er nú sem fyrr ritstýrt af körlum en konur hafa komið að ritstjórn og fréttastjórn dagblaða síðustu árin.

Sjá nánar vef Hagstofunnar.