Í tilkynningu Tryggingamiðstöðvarinnar til Kauphallarinnar kemur fram að Ágúst Helgi Leósson hefur látið af starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs og hverfur til nýrra starfa. Sigríður Hrólfsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjárfestinga- og fjárstýringarsviðs TM. Sigríður mun jafnframt gegna starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs félagsins.


Sigríður starfaði sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands árin 2000-2004 og sem forstöðumaður fjárstýringar hjá Eimskip árin 1998-2000. Frá 1994 til 1998 starfaði Sigríður hjá Íslandsbanka við fjárstýringu, áhættustýringu og gjaldeyrisviðskipti. Sigríður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA próf frá University of  California í Berekeley. Sigríður mun hefja störf 10. maí næstkomandi segir í tilkynningu.

Ragnheiður Agnarsdóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra vátrygginga- og fjármálasviðs hjá TM í stað Péturs Péturssonar, en Ragnheiður hefur síðastliðið ár starfað sem forstöðumaður einstaklingsviðskipta hjá félaginu. Á árunum  2001-2005 starfaði hún sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX Viðskiptaráðgjöf IBM og forverum þess IBM BCS og PicewaterhouseCoopers. Ragnheiður er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og vinnur að meistaraverkefni sínu við í mannauðsstjórnun við Viðskipta- og hagfræðideild sama skóla.

Framkvæmdastjórn TM skipa nú auk Óskars Magnússonar forstjóra: Guðmundur Örn Gunnarsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, Hjálmar Sigurþórsson framkvæmdastjóri tjónaþjónustu, Óskar B. Hauksson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Ragnheiður Agnarsdóttir framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu og Sigríður Hrólfsdóttir framkvæmdastjóri fjárfestinga- og fjárstýringarsviðs og fjármálasviðs.