Í byrjun apríl taka gildi breytingar á yfirstjórn PwC. Friðgeir Sigurðsson forstjóri PwC tekur þá yfir daglega framkvæmdastjórn af Guðbrandi Sigurðssyni sem sinnt hafði því hlutverki frá miðju ári 2013.

Guðbrandur lætur af starfi að eigin ósk og hefur ráðið sig sem framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Heimavellir ehf.

Friðgeir er lögfræðingur og einn af eigendum PwC. Undanfarin ár hefur hann verið forstjóri og faglegur framkvæmdastjóri félagsins jafnframt því að sinna sérsviði sínu sem er skatta- og lögfræðiráðgjöf.