Gengi bréfa í Högum hækkaði um 1,07% í 194 milljóna króna viðskiptum í dag. Gengi bréfa í N1 hækkaði um 0,28% í 119 milljóna króna viðskiptum. Mest viðskipti var með bréf þessara félaga af öllum í Kauphöll Íslands í dag.

Gengi bréfa í HB Granda lækkaði um 1,43% í dag og er verðið 27,50. Bréf félagsins voru fyrst tekin til viðskipta á aðalmarkaði á föstudaginn, en veltan nam í dag 54 milljónum. Verð bréfa í útboði sem fór fram á dögunum var 27,7.