Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins náði enn á ný nýjum hæðum í Kauphöllinni í dag. Tæplega 37 milljóna króna velta var með bréfin. Gengið hækkaði um 0,91% og endaði gengi þeirra í 9,96 krónum á hlut.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,71% og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,25%.

Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega, um 0,09% og endaði hún í 996,63 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam tæpum 90 milljónum króna.