Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,24% og stendur nú í 1.199,65 stigum. Hefur vísitalan lækkað um 4,76% frá áramótum. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 5,57%, en það var í afar litlum viðskiptum. Þá hækkaði gengi bréfa Icelandair um 2,78% og bréfa Sjóvár um 1,69%. Velta í viðskiptum með bréf Icelandair nam alls 1.236,7 milljónum króna og var því ríflega helmingur heildarveltu á hlutabréfamarkaði í dag.

Gengi bréfa nær allra skráðra fyrirtækja á aðallista hækkaði eða stóð í stað, að bréfum Haga undanskildum, en gengi þeirra lækkaði um 0,24%. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 2.253 milljörðum króna í dag.