Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur undanfarna mánuði skoðað möguleikann á því að bjóða beinar rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Markmiðið er að mæta þörfum farþega í millilandaflugi sem eiga erindi norður eða eru að norðan.

„Hugmyndin er að ferðirnar verði í tengslum við komur og brottfarir á Keflavíkurflugvelli síðdegis. Við teljum að við þurfum að byrja með a.m.k tvær ferðir í viku, síðdegis til Akureyrar og að norðan að morgni dags,“ segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Gray Line.

„Með þessu móti gætu farþegar verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda. Á sama hátt gætu þeir náð síðdegisflugi frá Keflavíkurflugvelli sama dag og þeir leggja af stað frá Akureyri,“ segir Þórir.

„Beint flug til Akureyrar hefur verið reynt og ekki gengið upp. Vafalítið mun koma að því að slíkar ferðir geti orðið sjálfbær kostur. En meðan verið er að skapa þann markað teljum við farsælast að byggja á þeirri staðreynd að mestallt millilandaflug fer um Keflavíkurflugvöll. Sá flugvöllur þjónar öllum áfangastöðum erlendis en viðbúið er að beint flug til Akureyrar tengist aðeins einum áfangastað erlendis.”

Við teljum því skynsamlegast í stöðunni að megináherslan í markaðssetningu Norðurlands beinist áfram að flugfarþegum sem fara um Keflavikurflugvöll, enda fara þar um 9 af hverjum 10 ferðamönnum sem hingað koma.”

Að mati Gray Line geta beinar rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar stuðlað að lengri dvöl ferðamanna fyrir norðan og verið ákjósanlegur valkostur fyrir þá sem eiga aðeins erindi þangað og ætla ekki að stoppa á höfuðborgarsvæðinu.

Þá vonast Gray Line eftir því að geta unnið got samstarf við flugfélög og ferðaskrifstofur svo að farþegar muni vita af þessum valkosti.