Gunnar Örn Kristjánsson, löggiltur endurskoðandi, var valinn nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings á hluthafafundi, að því er segir í frétt á vef bankans. Gunnar var forstjóri SÍF í um áratug.

Magnús Gunnarsson sagði af sér sem stjórnarformaður bankans fyrir skömmu.