Hagnaður Arion banka, heildareignir og hagnaður af reglulegri starfsemi jukust milli ára á fyrsta ársfjórðungi. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir afkomuna góða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2015 nam 19,3 milljörðum króna samanborið við 17,4 milljarða króna á sama tímabili 2014. Markast afkoma tímabilsins mjög af óreglulegum liðum líkt og á árinu 2014. Skipta þar mestu einskiptisatburðir eins og skráning og sala bankans á hlutum í fasteignafélaginu Reitum og alþjóðlega drykkjaframleiðandanum Refresco Gerber.

Arðsemi eigin fjár var 22,8% samanborið við 23,4% á sama tímabili árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi á tímabilinu nam 8,7 milljörðum króna samanborið við 6,0 milljarða á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 10,8% á fyrri helmingi ársins samanborið við 8,1% á sama tímabili 2014. Heildareignir námu 974,8 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014.

Eiginfjárhlutfall Arion banka lækkaði

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 23,2% en var 26,3% í árslok 2014. Lækkunin er einkum tilkomin vegna arðgreiðslu að fjárhæð 12,8 milljarðar króna og fyrirframgreiðslu á víkjandi lánum frá ríkinu að fjárhæð 20 milljarðar króna. Hlutfall eiginfjárþáttar A nam 21,8% og er óbreytt frá árslokum 2014.

Hreinar vaxtatekjur námu 13,2 mö.kr. samanborið við 12,2 ma.kr. á sama tímabili 2014. Hreinar þóknanatekjur námu 7,4 mö.kr. samanborið við 6,6 ma.kr. á sama tímabili 2014. Rekstrartekjur hækka á milli ára og námu 36,1 mö.kr. samanborið við 25,7 ma.kr. á sama tímabili 2014. Mikil hækkun rekstrartekna er einkum tilkomin vegna söluhagnaðar og hækkunar á verðmati á eignarhlutum í Reitum fasteignafélagi hf. og Refresco Gerber í tengslum við skráningu félaganna á markað.

Hrein virðisbreyting er neikvæð á tímabilinu og nemur 0,1 ma.kr., samanborið við 2,0 ma.kr. jákvæða virðisbreytingu á sama tímabili 2014. Hrein virðisbreyting lána hjá dótturfélaginu AFL – sparisjóði var neikvæð á tímabilinu og nam 1,7 ma.kr. Hrein virðisbreyting annarra lána samstæðunnar var jákvæð um sambærilega fjárhæð. Eigið fé bankans var 168,4 ma.kr. en nam 162,2 mö.kr. í lok árs 2014.

„Afkoma Arion banka fyrstu sex mánuði ársins er góð. Einskiptisatburðir frá fyrsta ársfjórðungi hafa áfram jákvæð áhrif á uppgjörið en þá seldi bankinn hluti í Reitum og alþjóðlega drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og voru félögin skráð á markað. Á öðrum ársfjórðungi er það fyrst og fremst regluleg starfsemi bankans sem skilar góðri arðsemi. Þannig heldur starfsemi bankans áfram að styrkjast og jukust þóknanatekjur, sem eru fyrst og fremst frá fyrirtækjum, um 13% á milli ára. Við sjáum einnig áhrif traustara efnahagsástands og aukinna umsvifa í efnahagslífinu í auknum lánveitingaum til fyrirtækja, einkum til fasteignaframkvæmda, flutninga- og ferðaþjónustu og sjávarútvegs, sem er mjög jákvætt. Standard & Poor´s hækkaði nýverið lánshæfismat Arion banka og er bankinn nú kominn í fjárfestingarflokk sem greiðir aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum. Hækkun lánshæfismatsins kom í kjölfar þess að Standard & Poor´s hækkaði lánshæfismat íslenska ríkisins eftir að áform stjórnvalda um afnám fjármagnshafta voru kynnt. Það samkomulag sem gert var á milli fulltrúa stjórnvalda og hluta kröfuhafa kveður á um breytingar á efnahag Arion banka en það hefur legið fyrir um langt skeið að Arion banki er vel í stakk búinn til að takast við slíkar breytingar samhliða afnámi hafta."

"Eftir að Arion banki fékk forræði yfir AFL - sparisjóði þá hefur það komið okkur á óvart hve alvarleg staða sjóðsins er. Óháðir ráðgjafar voru fengnir til að meta stóran hluta af lánasafni sjóðsins og hefur reynst nauðsynlegt að færa útlán sjóðsins enn frekar niður, eða um rúman 1,7 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Hins vegar eru aðrar virðisbreytingar lána samstæðunnar jákvæðar um sambærilega upphæð og því eru samanlögð áhrif virðisbreytinga útlána á uppgjör tímabilsins lítil,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka í tilkynningunni.