LOGOS slf. hagnaðist um 718 milljónir króna árið 2013 en það er tæplega 22% minni hagnaður en árið á undan. Eigið fé í árslok nam 656 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi og námu skuldir félagsins á sama tíma rúmum 673 milljónum króna.

Í skýrslu stjórnar kemur fram að hún leggur til að 422 milljónir króna verði greiddar yfir höfuðstól til eigenda vegna ársins 2013. Sautján félagsaðilar eru að LOGOS en á árinu störfuðu að meðaltali 88 starfsmenn hjá samstæðunni og námu launagreiðslur samtals 784 milljónum króna.

LOGOS rekur lögfræðiþjónustu í Reykjavík og London í gegnum dótturfélag þess, Logos Legal Services. Framkvæmdastjóri félagsins er Helga Melkorka Óttarsdóttir.