Hagnaður Straums-Burðarás eftir skatta árið 2006 er 45.211 milljónir króna en var 26.718 milljónir króna árið 2005, sem er 69% hækkun, að því er fram kemur í ársuppgjöri bankans.

Hagnaður eftir skatta á fjórða ársfjórðungi árið 2006 er 24.275 milljónir króna en var 12.616 milljónir króna á sama tímabili árið 2005. Það er 92% hækkun.

Greiningardeild Landsbankans spáði tíu milljarða króna hagnaði á fjórða ársfjórðungi og greiningardeild Glitnis spáði 7,1 milljarði króna í hagnað á fjórðungnum.

"Þetta er glæsileg afkoma á ári sem hefur einkennst af arðsömum vexti, útrás og uppbyggingu innviða," segir Friðrik Jóhannsson, forstjóri fjárfestingarbankans í tilkynningu.

"Jafnframt hefur okkur tekist að tryggja sjálfstæði bankans gagnvart íslenskum markaði með því að leita nýrra leiða í fjármögnun hans. Hlutfall erlendra tekna og verkefna hefur aukist umtalsvert og veitir það bankanum traustan og fjölbreyttan tekjugrunn.

Það, ásamt öflugri fjárfestingastarfsemi, mun tryggja hluthöfum okkar áframhaldandi góða arðsemi. Straumur-Burðarás er tilbúinn fyrir enn frekari innri og ytri vöxt. Markmið okkar, um að verða leiðandi norrænn fjárfestingabanki, er innan seilingar," segir hann.

Hreinar rekstrartekjur árið 2006 jukust um 37% á milli ára og námu 46.369 milljónum króna samanborið við 33.871 milljón króna árið 2005.

Á fjórða ársfjórðungi námu hreinar rekstrartekjur 18.149 milljón króna en voru 15.894 milljónir króna á sama tímabili árið 2005. Þetta er 14% aukning frá árinu 2005.

Arðsemi eigin fjár var 42% árið 2006.

Árið 2006 nam hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum 8,0% en var 3,9% árið 2005.

Hreinar þóknunartekjur tæplega fjórfaldast milli ára; námu 7.404 milljónum króna árið 2006 samanborið við 1.951 milljónum króna árið 2005.

Hreinar vaxtatekjur bankans voru 3.732 milljónir króna árið 2006, en voru neikvæðar um 248 milljónir króna árið 2005. Vaxtatekjur eru því margfalt hærri en árið 2005.

Heildareignir bankans námu 412.288 milljónum kro´na í árslok 2006 en voru 259.349 milljónir króna í lok árs 2005 og hafa því vaxið um 59% frá áramótum.

Eiginfjárhlutfall á CAD-grunni var 37,59%, þar af A-hluti 35,2%. Til samanburðar var CAD-hlutfall í lok ársins 2005 19,8%, þar af var A-hluti 15,3%.

Eigið fé nam 141.349 milljónum króna í árslok 2006, að frádregnum eigin bréfum.

Lánasafnið rúmlega tvöfaldaðist að stærð úr 48.911 milljónum króna í upphafi árs 2006 í 127.844 milljónum króna í árslok.

Hlutfall vaxtaberandi eigna í efnahagsreikningi hækkar um 59% frá árinu 2005.