Hannes Frímann Hrólfsson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri markaðsviðskipta Kaupþings segist ekki hafa gert gjaldeyrissamninga til að hagnast á falli krónunnar. Hann segir, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér, að farið hafi verið að öllu með réttum hætti þegar gjaldeyrisskiptasamningar voru gerðir. Ekki hafi verið um neinskonar frávik frá lögum og reglum að ræða. Kjarninn segir frá gjaldmiðlasamningunum í dag og vísar þar í skýrslu PricewaterHouse Cooper um samningana. Kjarninn segir að Ingvar Vilhjálmsson og Hannes Frímann hafi hagnast verulega af gerð samninganna.

„Í öðru lagi var til staðar kaupréttarkerfi í Kaupþingi þar sem lykilstarfsmenn keyptu hlutabréf í bankanum gegn láni, eins og alþekkt er af umfjöllun. Í mínu tilfelli var um að ræða erlend lán til kaupa á hlutabréfum í krónum. Þeir gjaldeyrissamningar sem nú eru til umfjöllunar er hin hliðin á því máli. Þannig myndaðist tap af lánasamningunum vegna veikingar krónunnar en hagnaður á móti af gjaldmiðlasamningunum. Því er það rangt sem haldið er fram að um stöðutöku gegn krónunni hafi verið að ræða,“ segir í yfirlýsingu frá Hannesi Frímanni.

Hann segir jafnframt að fullnaðaruppgjör við slitastjórn Kaupþings hafi átt sér stað vegna þessara mála í heild. Mikil óvissa hafi verið um stöðu svokallaðra Kaupþingslána eftir að persónuleg ábyrgð á þeim var felld niður.  „Í fyrra féll hins vegar dómur í mínu máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í tengslum við Kaupþingslánin.  Ég tapaði því máli. Í framhaldinu gekk ég frá uppgjöri við slitastjórn Kaupþings þar sem m.a. var tekið fullt tillit til framangreindra þátta,“ segir Hannes Frímann.