„Þetta er mjög skaðlegt því landsbyggðin borgar þetta og hún fer ekki á hverjum degi í Hörpuna,“ segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Pétur gagnrýndi árlegt framlag ríkis og borgar til reksturs tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu upp á rúman einn milljarð króna næstu 34 árin sem á að varna því að reksturinn fari á hliðina. Hann segir tvo milljarða vanta upp á til að bjarga Hörpu frá gjaldþroti.

Pétur vakti máls á stöðu Hörpu við upphaf þingfundar á Alþingi í dag og sagði halla á landsbyggðina.

„Draumur fárra er að breytast í martröð margra,“ sagði hann.

Peningahít

Fram kom í Fréttablaðinu í dag að óleyst fjárþörf Hörpu umfram tekjur hafi numið 1.164 milljónum króna í byrjun árs og til loka árs 2016. Þessi framlög koma til viðbótar við tæplega milljarðs króna árlega verðtryggða greiðslu eigenda Hörpu sem eigendurnir eru skuldbundnir að greiða á hverju ári næstu 34 árin. Samkvæmt tillögunni þurfa ríki og borg að leggja til Hörpu 160 milljónir króna á ári fram til 2016 til viðbótar við fyrri framlög. Auk þess hafa eigendurnir samþykkt að breyta 794 milljóna króna brúarláni, sem átti að greiðast í desember 2012, í stofnframlag handa Hörpu. Því verða bein viðbótarframlög eigenda til Hörpu 1.434 milljónir króna hið minnsta. Það eitt og sér dugar hins vegar ekki til að rétta við Hörpu. Skuldabréfaútgáfa, sem verið hefur á teikniborðinu lengi og Landsbankinn hefur þegar sölutryggt, verður nýtt til að hreinsa upp ýmsar útistandandi skuldir.