Hólmfríður Einarsdóttir, fyrrum markaðs- og þjónustustjóri Íslandsbanka hefur nú tekið sæti í stjórn Tjarnargötunar.

Hólmfríður er viðskiptafræðingur af alþjóðamarkaðssviði Háskólans í Reykjavík og hefur hún starfað að markaðs- og þjónustumálum undanfarin 17 ár, m.a. hjá Kaupþingi, Símanum og nú síðast hjá Íslandsbanka..

„Hólmfríður kemur inn með geypilega mikla reynslu og þekkingu á markaðsmálum og rekstri og mun taka virkan þátt í sókn Tjarnargötunar á ný mið” segir Einar Ben, framkvæmdarstjóri Tjarnargötunar í tilkynningu frá félaginu.