Hrein raunávöxtun Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) var á síðasta ári 9,31% samanborið við 10,63% hreina raunávöxtun árið 2003. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ára er 3,89% og síðustu 10 ára 4,94%. Heildareignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í árslok 2004 námu 179,8 milljörðum króna og uxu um tæpa 34 ma.kr. á árinu eða um 23,2%

Ávöxtun einstakra eignaflokka sjóðsins var misjöfn á síðasta ári. Raunávöxtun innlendra skuldabréfa var 8,59% og raunávöxtun innlendra hlutabréfa 54,36%. Raunávöxtun erlendra skuldabréfa sjóðsins var 5,00% og raunávöxtun erlendra hlutabréfa var neikvæð á síðasta ári um 0,23% að teknu tilliti til gjaldeyrisvarna. Ástæða lækkunar á erlendum hlutabréfum var mikil styrking krónunnar, sem rýrir eignir í erlendri mynt, en gripið var til gengisvarna á síðasta ári til að draga úr neikvæðum áhrifum af styrkingu krónunnar á erlendar eignir sjóðsins sem skiluðu sjóðnum 1,9 ma.kr.

Í árslok 2004 voru 59,3% af verðbréfaeignum sjóðsins í innlendum skuldabréfum, 15,8% í innlendum hlutabréfum, 0,7% í erlendum skuldabréfum og 24,2% í erlendum hlutabréfum. Meðalstaða sjóðsins í innlendum hlutabréfum var um 11% á árinu 2004.

Byggt á frétt á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða.