Hreinn Loftsson. Mynd af vef Lögmanna Höfðabakka.
Hreinn Loftsson. Mynd af vef Lögmanna Höfðabakka.

Hreinn Loftsson hrl. hefur ákveðið að draga sig úr samstarfi um rekstur Lögmanna Höfðabakka ehf. og mun framvegis sinna sjálfstætt sínum lögmannsstörfum.

Á vef Lögmanna Höfðabakka segir að Hreinn og lögmannsstofan munu áfram eiga samstarf um fyrirsvar í nokkrum málum og lögmannsstofan mun áfram sinna lögmannsþjónustu fyrir Birtíng útgáfufélag ehf., en Hreinn er stjórnarformaður og aðaleigandi þess.

Um leið og Hreinn kveður Lögmenn Höfðabakka eftir 24 ára starf gengur Kristín Ólafsdóttir hdl. að fullu til samstarfs við aðra eigendur Lögmanna Höfðabakka, þá Einar Farestveit hdl., Gunnar Inga Jóhannsson hrl. og Þórð Bogason hrl.