Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 1% í dag og stóð við lok markaða í 895 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 0,7% í gær en hafði um tíma í dag hækkað um 1,3% þó lítillega hafi dregið úr hækunni undir lok dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 0,6% og stendur nú í 331 stigi.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni. Century Aluminu og Bakkavöru hækkuðu um 12,6% og 12,2% en þrjú önnur félög hækkuðu minna.

Velta með hlutabréf var aðeins tæpar 115 milljónir króna en þar af voru rúmar 78 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir um 12,5 milljónir króna með bréf í Straum og um 7,5 milljónir króna með bréf í Bakkavör.