Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að framlengja frest til að skila inn tilkynningum vegna áður auglýsts skipti og skráningarútboðs hús-og húsnæðisbréfa yfir í Íbúðabréfa. Ástæðan er vegna óhjákvæmilegra seinkana við útgáfu rafvæddra húsbréfa í Verðbréfaskráningu Íslands um tvær klukkustundir.

Ný tímasetning til að skila inn tilkynningum til Arion Verðbréfavörslu hefur verið ákveðin 18:00. Undirstrikað skal að skilmálar útboðs- og skiptilýsingarinnar standa að öðru leiti.