Íslandsbanki veitti um helgina þremur ferðaþjónustufyrirtækjum Hvatningarverðlaun Íslandsbanka. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslandsbanki veitir þessi verðlaun en þau eru afhent samhliða ferðakaupstefnu Iceland Trawel Workshop (ITW) sem nú stendur yfir.

Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum í ferðaþjónustu og er þeim ætlað að vera hvatning til að efla og stuðla að nýsköpun og uppbyggingu hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum. Þrír aðilar með víðtæka reynslu og þekkingu á íslenskri ferðaþjónustu skipuðu dómnefnd sem valdi þau fyrirtæki sem hlutu verðlaunin. Formaður dómnefndar er Kristín Hrönn Guðmundsdóttir,viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka, og eiga Þóra Guðmundsdóttir, eigandi og stofnandi IcelandReps, og Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, einnig sæti í dómnefnd.

Verðlaunafyrirtækin þrjú

Valin voru þrjú fyrirtæki sem fengu að launum verðlaunagrip frá IcelandReps og peningaverðlaun frá Íslandsbanka sem mun nýtast þeim í áframhaldandi uppbyggingu og nýsköpun. Fyrirtækið sem hafnaði í fyrsta sæti heitir ARCANUM.  Það sérhæfir sig í ferðum upp á Mýrdalsjökul og inn á hálendið á vélsleðum og jeppum. Fyrirtækið bætti nýlega við jöklagöngu og ísklifri en þær ferðir fara fram á Sólheimajökli. Heimasíða fyrirtækis er www.arcanum.is .

Í öðru sæti var PINK ICELAND sem eru ferðaskipuleggjendur sem sérhæfa sig í að þjónusta samkynhneigða ferðalanga sem vilja koma til Íslands. Fyrirtækið hefur náð að nýta umburðarlyndi Íslands gagnvart samkynhneigðum einstaklingum og sterka réttarstöðu þeirra til frekari uppbyggingar í íslenskri ferðaþjónustu. Heimasíða fyrirtækisins er www.pinkiceland.is .

Í þriðja sæti var Selasigling á Hvammstanga sem býður upp á sela- og náttúruskoðun, sjóstangveiði og miðnætursiglingu í Húnaþingi Vestra. Ferðaþjónusta þar er í mikill sókn. Selurinn er þeirra séreinkenni og hefur svo verið um áraraðir. Nú stendur yfir kynningarátakið Á selaslóðum , sem er samstarfsverkefni fyrirtækja á svæðinu og er Selaskoðun hluti af því verkefni.  Heimasíða fyrirtækisins er www.sealwatching.is .