WOW air býður ferðamönnum sem fljúga frá Gatwick flugvelli í London til Íslands góð kjör á pakkaferðum. Á vefsíðu Daily Mail er greint frá því að nú býðst ferðamönnum sem vilja leggja leið sín til Ísland að kaupa pakkaferð frá WOW air á einungis 224 pund eða rúmlega 42.000 krónur.

Í pakkanum, sem gildir yfir vetrartímann, er flug til og frá Íslandi, gisting á hóteli í þrjár nætur með morgunverði, akstur til og frá flugvelli, farin verður ferð þar sem norðurljósin eru skoðuð og einnig farið á Þingvelli og Gullfoss og Geysi. Auk þess er aðgangur í Bláa lónið innifalinn í verðinu.

Til samanburðar er lægsta mögulega verð til og frá Gatwick flugvelli í London 25.800 krónur með sköttum.