Stjórn Distica hefur ráðið Júlíu Rós Atladóttur í stöðu framkvæmdastjórafélagsins en hún tekur við starfinu af Gylfa Rútssyni, sem sá um stofnun og uppbyggingu Distica. Hann hefur gengt starfi framkvæmdastjóra frá stofnun félagsins, eða frá árinu 2006. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Veritas, móðurfélagi Distica.

Júlía Rós hefur lokið meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Viðskiptafræðideild HáskólaÍslands, diplómanámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Íslands, B.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands og lyfjatæknanámi frá Heilbrigðisskólanum við Ármúla.

Júlía Rós hefur jafnframt víðtæka reynslu af þjónustu, rekstri og stjórnun í vörustjórnun, bæði úr lyfjaiðnaði sem utan, en hún starfaði áður sem markaðsstjóri hjá lyfjafyrirtækinu Vistor, deildarstjóri vöruhúsa hjá Distica, þjónustustjóri hjá Icelandair og verkefnastjóri á þróunarsviði Actavis Group. Síðast starfaði Júlía Rós sem framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola á Íslandi. Júlía Rós situr í stjórn Vörustjórnunarfélags Íslands.

Júlía Rós er gift Hermanni Björnssyni og eiga þau fjögur börn á aldrinum 10 til 17 ára.

Fyrirtækinu er lýst á eftirfarandi hátt í tilkynningunni:

„Distica er leiðandi á sínum markaði og sérhæfir sig í vörustjórnun fyrir fyrirtæki áheilbrigðismarkaði og dreifir m.a lyfjum, rannsóknartækjum, rekstrarvörum og neytendavörumtil sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila, tannlækna, dýralækna og verslana. Árstekjur Distica 2019 voru19,5 milljarðar og stöðugildi 78.

Distica er dótturfélag innan Veritas samstæðunnar sem samanstendur af sex fyrirtækjum þar semhvert dótturfélag hefur sína stjórn og sinn framkvæmdastjóra. Auk Distica eru dótturfélögin; Stoð sem sérhæfir sig í ráðgjöf, sölu og þjónustu á stoðtækjum, hjálpartækjum, sjúkraskóm, innleggjum og þrýstingsvörum. Vistor sérhæfir sig á sviði markaðssetningar á lyfjum, lausasölulyfjum,heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum. Artasan sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu áheilsuvörum, lausasölulyfjum og samheitalyfjum og MEDOR sem sérhæfir sig í ráðgjöf, sölu ogþjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvöru.“

„Það er með mikilli gleði og eftirvæntingu að við bjóðum Júlíu Rós aftur til starfa innan samstæðunnar. Það eru miklar breytingar í umhverfi félagsins og aukin krafa um hraða og sveigjanleika í þjónustu. Hlutverk Júlíu verður að leiða fyrirtækið og það frábæra starfsfólk sem þar er að finna, til nýrra tíma og til áframhaldandi forystu í vörustýringu á heilbrigðismarkaði.Jafnframt vil ég nota tækifærið og þakka Gylfa fyrir samstarfið og hans mikla framlag yfir langantíma, bæði í þágu Distica og eins samstæðunnar í heild á mikilvægum þróunartíma hennar,“ segir Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas, í tilkynningunni.