Karl Óðinn Guðmundsson hefur verið ráðinn stöðvarstjóri Icelandair Cargo á JFK flugvelli í New York. Jón Theodorsson, núverandi stöðvarstjóri, mun starfa áfram út febrúar 2011 og mun Karl þá taka við. Hann mun hefja störf um næstu mánaðarmót sem almennur starfsmaður.

Karl er fæddur árið 1983 og hefur viðskiptafræðigráðu frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur unnið hjá Icelandair Cargo síðan árið 2004, bæði í Keflavík og á aðalskrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík.

Jón Theodorsson hefur unnið hjá Icelandair Group frá árinu 1964, lengst af hjá Icelandair Cargo en einnig hjá Icelandair. Eftir að Jón lætur af störfum sem stöðvarstjóri mun hann starfa sem ráðgjafi fyrir fyrirtækið.