Viskíframleiðandinn Diageo sem framleiðir Johnnie Walker ætlar að gefa út nýtt vörumerki sem er ætlað að höfða til kvenna en það mun bera nafnið Jane Walker að því er The Wall Street Journal greinir frá .

Diageo sem er einn stærsti áfengisframleiðandi heims tilkynnti að nýja vörumerkið yrði framleitt í takmörkuðu upplagi og fara í sölu í næsta mánuði.

Þetta er í fyrsta skipti í heila öld sem fyrirtækið breytir merkinu á flöskunum sem mun núna sýna konu í stað karlmanns.