Bankaráð Landsbanka Íslands hf. hefur tekið ákvörðun um að nýta að hluta heimild í 2. mgr. 4. gr. samþykkta bankans til hækkunar á hlutafé. Hlutafé verður hækkað um kr.800.000.000 að nafnverði og selt til núverandi hluthafa bankans. Ályktun bankaráðsins er svohljóðandi:

"Bankaráð samþykkir aukningu á hlutafé Landsbanka Íslands hf. um kr. 800.000.000, að nafnverði, eða um 9,88%, með áskrift nýrra hluta. Nýir hlutir verða boðnir hluthöfum bankans til kaups í samræmi við hlutafjáreign þeirra við lok viðskipta 11. mars 2005. Þó munu kr. 100.000.000,- að nafnvirði af hinu nýja hlutafé verða notaðar til að bjóða þeim hluthöfum sem eiga kr. 100.000,- að nafnverði eða minna að kaupa a.m.k. kr. 10.000,- að nafnverði sem jafnframt verði minnsti hlutur sem hægt verður að kaupa í útboðinu.

Við sölu nýrra hluta verður miðað við að sölugengið verði kr. 14,25. Við það skal miðað að áskrift nýrra hluta verði lokið 29. mars nk. og komi til greiðslu 15. apríl 2005. Nánari upplýsingar um áskrift nýrra hluta verða sendar til hluthafa í næstu viku.

Náist ekki að selja alla hina nýju hluti til núverandi hluthafa í samræmi við framangreint er bankastjórn veitt heimild til að leita kaupenda að því sem eftir stendur af útgáfunni. Skulu þá hlutir annað hvort vera seldir með því að bjóða hluthöfum aukinn hlut eða með því að leita kaupenda utan hluthafahóps bankans. Skulu hlutir boðnir á sama verði og stóð hluthöfum til boða.

Bankaráð veitir bankastjórn að öðru leyti heimild til að ákvarða hvernig sölu hinna nýju hluta verður háttað, til að hafa milligöngu um viðeigandi breytingar á samþykktum félagsins, gera allar ráðstafanir tengdar sölu umræddra hluta og annast nauðsynlegar tilkynningar."