Regluleg laun voru að meðaltali 1,9% hærri á öðrum ársfjórðungi 2014 en á fyrri ársfjórðungi, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands .

Laun hækkuðu um 5,4% að meðaltali frá fyrra ári og var hækkunin 5,8% á almennum markaði en 4,6% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,5% en 3,5% hjá starfsmönnum sveitarfélaga.

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa mest í samgöngum og fjármálaþjónustu þar sem launin hækkuðu um 2,8%. Í byggingastarfsemi hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 2,2%, í verslun um 1,3%. Í iðnaði hækkuðu launin um 0,8%.

Frá fyrra ári hækkuðu launin mest í byggingastarfsemi eða um 7,9% en minnst í iðnaði eða um 4,6%.