Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins seldi í dag 20.000.000 hluti í Icelandair Group í Kauphöllinni. Verðmæti hlutanna nemur 481 milljón króna, sé miðað við dagslokagengi Icelandair, sem er 24,05 krónur á hlut.

Eftir söluna á LSR samtals 481.000.000 hluti í Icelandair Group. Félagið sendi frá sér flöggun vegna viðskiptanna í ljósi þess að eignarhlutur LSR fór undir 10% atkvæðamagn og stendur í 9,62% atkvæða.

Eftir viðskiptin skiptist eignarhlutur eftir einstaka deildum í LSR á eftirfarandi hátt:

A-deild á 6,44% atkvæða, B-deild á 2,71% atkvæða, séreignarhluti LSR á 0,13% atkvæða auk þess sem Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga á 0,34% atkvæða.