Stjórn Faxaflóahafna sf. hefur samþykkt samhljóða að ráða Magnús Þór Ásmundsson í starf hafnarstjóra og tekur hann við starfinu frá og með 5. ágúst næstkomandi.

Magnús Þór er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands og lauk meistaragráðu í faginu frá DTU í Danmörku árið 1990.

Magnús starfaði frá árinu 1990 til 2009 hjá Marel, en þar var hann framkvæmdastjóri framleiðslu, fyrst á Íslandi og síðar með ábyrgð á framleiðslueiningum Marel í Evrópu.  Árið 2009 hóf Magnús Þór störf hjá Fjarðaráli fyrst sem framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar, en síðar sem forstjóri. Hjá Fjarðaáli var Magnús ábyrgur fyrir allri starfsemi félagsins á Íslandi, þ.m.t. innleiðingu á öryggisstefnu, og samvinnu við opinbera aðila.  Þar átti hann m.a. samstarf við sveitarstjórn Fjarðabyggðar varðandi hafnamál og umhverfismál.

Á árum sínum bæði hjá Marel og Fjarðaráli hefur Magnús Þór öðlast mikla reynslu af stjórnun og rekstri þ.m.t. breytingastjórnun stjórnun viðamikilla verkefna og áætlanagerð.