Milestone hefur eignast 244.027.653 hluti í Dagsbrún, segir tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eftir viðskiptin á félagið 343.107.482 hluti eða um 7,9% í félaginu. Fyrir átti Milestone 2,28%.

Riko Corp., félag í eigu Sigurðar Ásgeirs Bollasonar og Magnúsar Ármann, selur 244.027.653 hluti, eða um 5,62% af heildar hlutafé félagsins.

Þeir eru eftir sem áður hluthafar í Runni ehf. sem á 651.214.223 hluti í félaginu.

Milestone ehf. er í eigu Karls Wernerssonar, Steingríms Wernerssonar og Ingunnar Wernersdóttur.