Norðurlöndin hafa lýst sig reiðubúin að aðstoða Ísland við að kljást við ástandið í kjölfar hruns bankanna og hafa ákveðið að koma á laggirnar starfshópi háttsettra embættismanna til að fylgja málinu eftir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þar kemur fram að hópnum er falið að fylgjast með framvindu samkomulags Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) við Ísland og hvernig Norðurlöndin gætu haft aðkomu að því máli.

Í tilkynningunni kemur fram að á fundi síðdegis í gær ræddu norrænu forsætisráðherrarnir um alþjóðlegu fjármálakreppuna og sér í lagi hina alvarlegu stöðu á Íslandi.

„Ég met mikils þann mikla stuðning sem ég fékk á fundinum í Helsinki í gær,“ segir Geir H. Haarde, forsætisráðherra í tilkynningunni.

„Afar gagnlegt verður að hafa góða tengingu við norrænu ríkisstjórnirnar í gegnum vinnuhópinn. Við ætlum að sigrast á þessum erfiðleikum og standa sterkari á eftir sem þjóð.”

Geir vill ekki þrýsta á norræna forsætisráðherra um lán

Eins og kunnugt er hefur Ísland gert bráðabirgðasamkomulag við IMF um 2 milljarða Bandaríkjadala lánafyrirgreiðslu frá sjóðnum.

Þá kemur fram að forsætisráðherra hefði lagt áherslu á að hann vildi ekki þrýsta á starfsbræður sína á Norðurlöndunum en að lánsfjárþörf Íslendinga næmi 4 milljörðum Bandaríkjadala.

„Ég fagna því að norrænu grannríkin og aðrar vinaþjóðir skuli vera reiðubúin að styðja okkur í að reisa við efnahag landsins eftir hið skyndilega hrun íslensku bankanna. Yfirlýst samstaða Norðurlandanna er okkur ákaflega mikils virði,“ sagði Geir H. Haarde á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Helsinki í gær.

„Ég vona einnig að skoðanaskipti okkar verði fyrsta skrefið í átt til efldrar samvinnu Norðurlandanna til að takast á við hina alþjóðlegu fjármálakreppu sem gæti ógnað stöðugleika í fleiri ríkjum.“